Reglur fyrir Árskeppni FmÍ í svifflugi
- Flugmálafélag Íslands (FmÍ) efnir ár hvert til Árskeppni FmÍ í svifflugi. Keppnistímabilið er frá 1. janúar til 31. desember að báðum dögum meðtöldum.
- Tilgangur keppninnar er að hvetja til aukins yfirlandsflugs á svifflugum.
- Þátttaka er heimil svifflugmönnum sem eru fullgildir meðlimir í FmÍ eða aðildarfélagi þess.
- Keppendur skulu hafa skírteini svifflugmanns sem er útgefið af Samgöngustofu.
- Keppnin er einstaklingskeppni og gilda fyrir hana hinar almennu reglur Féderation Aéronautique Internationale (FAI) og leikreglur svifflugmanna (Sporting Code, D-section). Metin verða til stiga tvö bestu yfirlandsflug hvers keppanda sem flogin eru á Íslandi. Undanskilin eru þó flug sem flogin eru á svifflugmótum.
- Stig verða veitt fyrir keppnisflug á eftirfarandi hátt:
- Bein vegalengd (STRAIGHT DISTANCE) 1,00 stig/km,
- Mark vegalengd (GOAL DISTANCE) 1,5 stig/km,
- Fram-og-til-bakaflug (OUT AND RETURN) 1,75 stig/km,
- Þríhyrningsflug (TRIANGLE) 2,0 stig/km,
- Frjáls vegalengd ([FREE DISTANCE]) 0,75 stig/km,
- Frjáls 3 snúningspunkta vegalengd ([FREE 3TP DISTANCE]) 1,5 stig/km,
- Frjáls fram-og-til-baka ([FREE OUT & RETURN]) 1,5 stig/km,
- Frjálst þríhyrningsflug ([FREE TRIANGLE]) 1,75 stig/km,
- Aðeins þau flug verða metin til keppninnar sem ná a.m.k. 50 stigum.
- Ef marki er ekki náð í flugi sem tilkynnt var sem Mark vegalengd verða veitt 1 stig/km.
- Ef ekki er náð til baka að brottfararpunkti í flugi sem tilkynnt var sem Fram-og-til-bakaflug, verða veitt 1,5 stig/km að snúningspunkti en þaðan 1,0 stig/km.
- Ef ekki er náð til baka að brottfararpunkti í flugi sem tilkynnt var sem þríhyrningsflug verða veitt 1,5 stig/km að náðum hornpunktum en þaðan 1,0 stig/km.
- Ef ekki er náð til baka að brottfararpunkti í frjálsum flugum skal helminga vegalengd sem flogin er frá síðasta gilda snúningspunkti.
- Um meðferð allra gagna eins og flugyfirlýsingu, igc-skrá, flugtaks- og lendingarvottorðs gilda sömu reglur og fram koma í leikreglum svifflugmanna. Einnig gilda leikreglur svifflugmanna um brautir og flugrita. Skila skal igc-skrá að flugi loknu.
- Tilkynna skal Svifflugnefnd FmÍ eigi síðar en 20. janúar ár hvert um þau flug ársins á undan sem meta á til stiga í keppninni.
- Sigurvegari telst sá svifflugmaður sem hæsta stigatölu hlýtur samkvæmt 5. grein. Ber hann titilinn Ársmeistari í svifflugi það árið sem keppnin fór fram.
Að lokum eru keppendur beðnir um að kynna sér vel þær reglur sem gilda um keppnina og meðferð gagna.
Reglusafn FAI
Hægt er að hlaða niður reglum FAI af léninu fai.org (https://www.fai.org/igc-documents)
- Sporting code section 3 - Edition 2023a (í gildi frá 1. október 2023). Þaðan má hlaða niður fleiri skrám:
- Annex A to Section 3 – RULES FOR WORLD AND CONTINENTAL GLIDING CHAMPIONSHIPS (um framkvæmd stigagjafar í lands-, álfu- og heimsmeistarakeppnum)
- Alternative Scoring System
- Handicaps
- Annex B – Validation of Performances – Equipment & Procedures
- Annex C – Official Observer and Pilot Guide
- IGC-APPROVED FLIGHT RECORDERS (Kröfur um búnað sem notaður er við að mæla og skrásetja flug)
- IGC Position Recorders for Silver & Gold badge flights
Fannarsbikar SFÍ
Fannarsbikarinn gaf Þórður Hafliðason í minningu Fannars Sverrissonar, svifflugmanns. Bikarinn vinnur sá svifflugmaður sem flýgur lengst út frá Sandskeiði að lágmarki 50 kílómetra. Stjórn Svifflugfélags Íslands veitir bikarinn, ekki þarf að sækja um hann því svifflugdeild Flugmálafélags Íslands veitir upplýsingar um lengstu flug.
Ekki eru gerðar jafn stífar kröfur og FAI reglur segja til um.
Ársmeistarar
Röð | Ár | Nafn | Nr flugsk | Félag |
---|---|---|---|---|
1 | 1966 | Leifur Magnússon | SFÍ | |
2 | 1967 | Þórður Hafliðason | SFÍ | |
3 | 1968 | Gunnar Þorvaldsson | SFA | |
4 | 1971 | Sigmundur Andrésson | SFÍ | |
5 | 1972 | Sigmundur Andrésson | SFÍ | |
6 | 1973 | Haraldur Ásgeirsson | SFA | |
7 | 1974 | Sigmundur Andrésson | SFÍ | |
8 | 1976 | Sigmundur Andrésson | SFÍ | |
9 | 1977 | Stefán S.Sigurðsson | SFÍ | |
10 | 1978 | Sigmundur Andrésson | SFÍ | |
11 | 1979 | Bragi Snædal | SFA | |
12 | 1980 | Þorgeir L Árnason | SFÍ | |
13 | 1981 | Garðar Gíslason | SFÍ | |
14 | 1983 | Baldur Jónsson | SFÍ | |
15 | 1984 | Sigmundur Andrésson | SFÍ | |
16 | 1985 | Baldur Jónsson | SFÍ | |
17 | 1986 | Magnús Ingi Óskarsson | 2359 | SFÍ |
18 | 1987 | Gylfi Í Magnússon | SFA | |
19 | 1988 | Garðar Gíslason | SFÍ | |
20 | 1989 | Magnús Ingi Óskarsson | 2359 | SFÍ |
21 | 1990 | Magnús Ingi Óskarsson | 2359 | SFÍ |
22 | 1991 | Steinþór Skúlason | 1812 | SAS |
23 | 1993 | Magnús Ingi Óskarsson | 2359 | SFÍ |
24 | 1994 | Garðar Gíslason | SFÍ | |
25 | 1995 | Þórður Hafliðason | SFÍ | |
26 | 1996 | Þórður Hafliðason | SFÍ | |
27 | 1998 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
28 | 2000 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
29 | 2001 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
30 | 2002 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
31 | 2003 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
32 | 2004 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
33 | 2005 | Steingrímur R. Friðriksson | SFÍ | |
34 | 2006 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
35 | 2007 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
36 | 2008 | Baldur Jónsson | SFÍ | |
37 | 2009 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
38 | 2010 | Daníel H. Stefánsson | 4863 | SFÍ |
39 | 2011 | Daníel H. Stefánsson | 4863 | SFÍ |
40 | 2012 | Daníel H. Stefánsson | 4863 | SFÍ |
41 | 2012 | Ásgeir H. Bjarnason | SFÍ | |
42 | 2017 | Daníel H. Stefánsson | 4863 | SFÍ |
42 | 2020 | Daníel H. Stefánsson | 4863 | SFÍ |
43 | 2023 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
Fannarsbikarinn
Röð | Ár | Nafn | Nr flugsk | Félag |
---|---|---|---|---|
1 | 2000 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
2 | 2001 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
3 | 2002 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
4 | 2003 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
5 | 2004 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
6 | 2005 | Steingrímur R. Friðriksson | SFÍ | |
7 | 2006 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
8 | 2007 | Ásgeir H. Bjarnason | SFÍ | |
9 | 2008 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
10 | 2009 | Steinþór Skúlason | 1812 | SFÍ |
11 | 2010 | Ásgeir H. Bjarnason | SFÍ | |
12 | 2011 | Daníel H. Stefánsson | 4863 | SFÍ |
13 | 2012 | Daníel H. Stefánsson | 4863 | SFÍ |
14 | 2013 | Ásgeir H. Bjarnason | SFÍ | |
15 | 2020 | Daníel H. Stefánsson | 4863 | SFÍ |