hefur ekkert með þennan pistil að gera.
Þessi pistill er skrifaður til að tilkynna félugum að nú er búið að setja inn á vefinn upplýsingar um flug ásamt skuldastöðu til 30. september 2014. Félagar eru beðnir um að fara vel yfir flugin sín til að fullvissa sig um að allt sé rétt skráð.
Það sem skráningarmönnum þótti helst óljóst við skráningu var hvort fólk væri að fljúga saman og skipta á milli sín kostnaði eða um væri að ræða kennsluflug. Kerfið vinnur þannig að ef flugmaður og 2. flugmaður eru skráðir þá er kostnaði skipt jafnt á milli þeirra, nema annað sé tekið fram í athugasemdum.
Vinsamlegast sendið athugasemdir og beiðnir um leiðréttiingar til [email protected]. Greiðsluseðlar verða sendir út á allra næstu dögum og beinir gjaldkeri þeim vinsamlegu tilmælum til háttvirtra skuldara að þeir standi skil á skuldum sínum sem fyrst.