Skilaboð frá gjaldkera

Komið öll sæl, svifflugmenn og konur.

Búið er að uppfæra flug- og viðskiptaskrá á vefnum svo nú geta allir skoðað flug sín á árinu 2014 ásamt skuldastöðu og hreyfingum. Þeir sem finna eitthvað sem þarfnast leiðréttingar skulu senda tölvupóst á [email protected]
Gjaldkeri óskar auðvitað eftir að skuldir verði greiddar sem fyrst og bendir á að hér er um að ræða skuldir frá síðasta ári og jafnvel eldra svo það er ekki eftir neinu að bíða.

Undirritaður vill nota þetta tækifæri til að biðjast velvirðingar á því að vefurinn hefur verið sambandslaus að undanförnu. Við höfum ekki hugmynd um hvers vegna þetta gerðist en hann hætti bara að virka allt í einu. Það tók töluverðan tíma að átta sig á hvar átti að leita en í ljós kom að þetta lá hjá þjónustuaðila okkar í Bandaríkjunum. Síðan tók nokkra daga að ýta vefnum í gang.

Með svifflugkveðju,
Friðjón.