Flugskrá ársins 2015

Ágætu félagar.

Loksins er flugskrá ársins 2015 orðin aðgengileg á vefnum. Einng geta félagar séð viðskiptastöðu sína við félagið eins og hún er í árslok 2015, Eitthvað er eftir að færa af skuldfærslum, geymslugjöld, daggjöld og fleira. Athugið vel að velja þarf árið 2015 þegar viðskiptaskrá er skoðuð vegna þess að ekki er búið að stofna byrjunarstöður 2016. Farið er fram á að nú fari allir vel yfir flug og skuldir og sendi óskir um leiðréttingu til [email protected] 

Það hefur verið heldur dauft yfir vefnum undanfarna mánuði en það spilar vafalaust stóran þátt að Ída hefur því miður ekki séð sér fært að vera lengur ritstjóri hans. Á hún hinar bestu þakkir skilið fyrir dugnað við að setja inn pistla og að ganga eftir pistlum frá startsjórum og flleirum. Undirritaður hefur hugsað sér að gera eitthvað í því að hrista upp í vefnum þar til við finnum nýjan ritstjóra. Pistlar og annað efni er vel þegið, það má senda hann í tölvupósti til [email protected] 

Með bestu kveðju,
Friðjón.