Gjaldskrá 2024
Fluggjöld félaga SFÍ og SFA:
TF-SAC: Mínútugjald kr. 85
TF-SAL: Mínútugjald kr. 66.
TF-SAX: Mínútugjald kr. 85.
TF-SAS: Mínútugjald kr. 110.
TF-STK: Mínútugjald kr. 66.
Einungis er greitt fyrir fyrstu 2 klukkustundir hvers flugs. Ekki er greitt fyrir vírslit sem leiðir til tafarlausrar lendingar.
Dímóna
TF-SAA: Mótorgjald kr. 200 fyrir hverja mótoreiningu (Tac) eða kr. 20 þúsund fyrir 100 einingar.
Bóka skal flug á svifflug.com. Ef félagi bókar og mætir ekki má leggja á hann uslagjald sem nemur 5 vinnupunktum (4.500 kr.).
Tog:
Spiltog kr. 3.000.
Flugtog kr. 7500 í 500 metra og kr. 3.200 fyrir hverja 250 metra umfram það.
Heimtog eða úttog eftir mæli, kr. 200. á tac einingu.
Annað:
Árgjald er kr. 30.000. Árgjald 67 ára á árinu og eldri kr. 20.000.
Daggjald fyrir notkun á flugaðstöðu kr. 6.000 að hámarki 36.000. Lagt á þá sem fljúga sem flugstjórar (ekki á kennsluflug).
Skráningargjald fyrir einkavélar er kr. 1.000 fyrir hvert flug. Geymsla fyrir samsetta einkavél að sumri kr. 18.000.
Vinnupunktur er kr. 900
Skilvísir félagsmenn mega skulda allt að 100 þúsund krónur en gera skal upp skuldir mánaðarlega. Þeir sem greiða inn á flug og eru ekki í skuld fá inneign sem er 10% umfram innborgunina. Það er háð því að inneignin með innborgun sé amk kr. 50.000 sem gefur þá inneign til flugs upp á kr. 55.000 o.s.frv.
Kennsla:
Byrjendapakki, 5 flug kr. 50.000. Flugdagbók er innifalin.
Framhaldspakki 1, 12 flug kr. 120.000.
Framhaldspakki 2, 23 flug kr. 230.000.
Vélflugmannspakki, 15 flug kr. 146.000. Flugdagbók er innifalin.
Nemendur 18 ára og yngri fá 10% afslátt af framhaldspökkum 1 og 2 gegn staðgreiðslu.
Stök kennsluflug af spili kr. 10.000. Í flugtogi (500m) kr. 14.000.
Félagsmenn sem bjóða einhverjum með sér í flug greiða fyrir það skv. almennri gjaldskrá félagsmanna.
Gestir:
Gestir sem koma og vilja prófa að fara í flug (með kennara) borga „stök kennsluflug“ af spili kr. 10.000 og í flugtogi (500m) kr. 14.000. Miða skal við að þessi flug séu ekki lengri en 20 mín.
Sérstök kynningarflug kosta kr. 40.000. Dregið er í 1000 metra, flogið er listflug sé þess óskað.
Svifflugmenn utan félags sem koma sem gestir fara alla jafna í kynningarflug með kennara. Fljúgi þeir ekki meira en það greiða þeir „stakt kennsluflug“ Fljúgi þeir einflug greiða þeir skv gjaldskrá félagsmanna + daggjald(6.000).