Svifflugskírteini / Sailplane Pilot Licence SPL
Til að fá útgefið skírteini svifflugmanns SPL (Part-SFCL) þarf að ljúka bóklegu og verklegu námi hjá flugskóla sem hefur heimild til þjálfunar nemenda í svifflugi. Að loknu bóklegu námi hjá flugskóla þarf að standast bókleg próf hjá Samgöngustofu.
Svifflugsnemi þarf að vera handhafi a.m.k. 2.flokks heilbrigðisvottorðs og orðinn 14 ára gamall áður en hann fer í sitt fyrsta fyrsta einflug. Hann þarf að vera orðinn 16 ára gamall til að fá útgefið svifflugskírteini.
Próf í bóklegri þekkingu
Umsækjendur um flugmannsskírteini fyrir loftbelgi, skírteini svifflugmanns eða einkaflugmannsskírteini þurfa að ljúka prófunum með 75% árangri að lágmarki í hverri námsgrein. Próf í bóklegu námi fer fram samkvæmt útgefinni námsskrá sem inniheldur níu próffög.
a) almennar námsgreinar:
- Lög og reglur um loftferðir
- Mannleg geta
- Veðurfræði
- Fjarskipti
b) sérstakar námsgreinar er lúta að mismunandi gerðum loftfara:
- Flugfræði
- Verklagsreglur í flugi
- Afkastageta og áætlanagerð
- Almenn þekking á loftförum
- Flugleiðsaga
Próftakar
- hafa 18 mánuði til að ljúka prófunum talið frá enda þess mánaðar sem fyrsta próf var þreytt
- fá að hámarki fjórar tilraunir í hverju próffagi
Að loknu bóklegu prófi
Hefur nemandi 24 mánuði til að
- ljúka verklegu námi
- standast verklegt færnipróf með prófdómara
- Þeir sem ekki fullnægja einhverjum framangreindra skilyrða þurfa að fá endurþjálfun hjá flugskóla og endurtaka bókleg próf Samgöngustofu.
Réttindi svifflugmanns (Part-SFCL)
Réttindi handhafa skírteini svifflugmanns eru að stjórna svifflugum án þess að taka greiðslu fyrir.
Til að mega flytja farþega þurfa flugmenn að hafa lokið eftirfarandi:
- 10 klst. fartíma eða 30 stört/flugtök og lendingar sem flugstjóri á svif- eða ferðavélsvifflugu eins og við á eftir útgáfu skírteinisins, og
- Eitt æfingarflug með kennara á svifflugu til að sanna hæfni.
- Kennari eða prófdómari, eins og við á skulu kvitta í logbók flugmanns að afloknu flugi.
Til að viðhalda réttindum til að fljúga með farþega á svifflugu þurfa flugmenn að hafa lokið eftirfarandi sem flugstjórar (PIC):
- 3 flugtök og lendingar á síðustu 90 dögum á svifflugu, ekki TMG.
Til að viðhalda réttindum til að fljúga með farþega á TMG þurfa flugmenn að hafa lokið eftirfarandi sem flugstjórar (PIC):
- 3 flugtök og lendingar á síðustu 90 dögum á TMG, þar af skal 1 flugtak og lending vera á nóttu ef ætlað er að fljúga með farþega að nóttu til.
- Flugmaður með kennara eða prófdómara um borð eru ekki skilgreindir sem farþegar þegar ljúka þarf eitt eða fleiri flug vegna krafna um viðhald farþegaréttinda.
Til að viðhalda réttindum fyrir svifflugur
- þarf skírteinishafi að hafa lokið á síðustu 24 mánuðum á svifflugu, ekki TMG; að minnsta kosti:
5 klst. fartímum, þ.m.t. 15 flugtök sem flugstjóri eða með kennara eða undir leiðsögn kennara, og - tveimur þjálfunarflugum með flugkennara á svifflugu (amk eitt á hverju vori).
eða - standast hæfnipróf með prófdómara.
Til að viðhalda réttindum fyrir ferðavélsvifflugur (TMG)
þarf skírteinishafi að hafa lokið á síðustu 24 mánuðum á TMG:
- að minnsta kosti 12 klst. fartímum sem flugstjóri, með kennara eða undir leiðsögn kennara, og
- þar af a.m.k 6 klst. fartímum og 12 flugtök og lendingar á TMG, ásamt einu þjálfunarflugi með flugkennara sem þarf að vera að lágmarki 1 klukkustund.
eða - standast hæfnipróf með prófdómara á TMG.
- Flugmaður sem er handhafi flugmannskírteinis Part-FCL með einshreyfilsáritun (SEP) og áritunar fyrir ferðavélsvifflugu (TMG) geta uppfyllt framangreindar kröfur í hvorum flokknum sem er eða sambland af þessu og fengið framlengingu á báðum áritunum.
- 6 klst. af 12 klst. má framkvæma á svifflugu sem er ekki TMG til að viðhalda TMG réttindum.
Flugtaksaðferð
Ný réttindi:
- Spilstart: 10 stört með kennara og 5 stört í einflugi undir umsjón kennara.
- Flugtog og sjálfstart (self-launch): 5 stört með kennara og 5 stört í einflugi undir umsjón kennara.
- Fyrir sjálfstart má framkvæma 5 flugtök með kennara á TMG.
- Nýrri flugtaksaðferð skal vera staðfest í logbók af yfirkennara eða kennara sem ábyrgist þjálfun.
Viðhald réttinda í flugtaksaðferð:
- Á síðustu 24 mánuðum lokið:
- a.m.k. 5 stört í flugtaksaðferð
- Fyrir sjálfstart má framkvæma flugtök á TMG eða sameina fjölda á TMG og sjálfstartandi svifflugu til að uppfylla kröfu.
Viðhald kennaraáritunar / FI(S)
Innan 3 ára, lokið:
- Upprifjunarnámskeið kennara fyrir svifflug, og a.m.k.
- 30 klst. eða 60 flugtök og lendingar sem kennari.
- Innan 9 ára (þriða hverja endurnýjun):
- Sýnt fram á hæfni til kennslu með kennara sem uppfyllir kröfur fyrir FI(S) kennsluréttinda sem er útnefndur af yfirkennara ATO/DTO.
eða - Upprifjunarnámskeið og hæfnismat með prófdómara